Markahæsti leikmaður Al Arabi
Heimir Hallgrímsson tók í morgun við þjálfun Al Arabi í úrvalsdeildinni í Katar. Langmarkahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu er miðjumaðurinn Mohamed Salah.
Egypski framherjinn Mohamed Salah hefur raðað inn mörkum með Liverpool undanfarin tvö tímabil en hann á alnafna sem spilar með Al Arabi.
Egypski framherjinn Mohamed Salah hefur raðað inn mörkum með Liverpool undanfarin tvö tímabil en hann á alnafna sem spilar með Al Arabi.
Hinn 27 ára gamli Salah hjá Al Arabi er kominn með sex mörk í fjórtán leikjum á tímabilinu en næstmarkahæsti leikmaður liðsins er með tvö mörk.
Salah, er frá Katar, en hann er í láni hjá Al Arabi frá Al Markhiya þar sem hann spilaði á síðasta tímabili.
Salah var á skotskónum í 3-0 sigri á Umm Salal um helgina en þar var Heimir á meðal áhorfenda í stúkunni.
Athugasemdir