mán 10. desember 2018 11:19
Magnús Már Einarsson
Joe Gomez framlengir við Liverpool
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Joe Gomez hefur skrifað undir nýjan samning við Liverpool sem gildir til ársins 2024.

Hinn 21 árs gamli Gomez kom til Liverpool frá Charlton árið 2015 en hann hefur spilað bæði sem hægri bakvörður og miðvörður.

„Ég elska félagið, ég elska að spila og læra hér og ég er ánægður með að það haldi áfram," sagði Gomez.

Gomez hefur átt gott tímabil en hann meiddist gegn Burnley í síðustu viku.

Gomez verður frá keppni í sex vikur og missir af mörgum leikjum yfir jólahátíðarnar.
Athugasemdir
banner
banner