Fotbolti.net
10.12.23 - 13:05
Aksentije Milisic

Byrjunarliðin í enska: Haaland meiddur - Fjórar breytingar hjá Chelsea

Alvarez og Foden byrja.

Alvarez og Foden byrja.

Canon

Mynd: Getty Images

Klukkan 14 fara fram þrír leikir í ensku úrvalsdeildinni og verða Englandsmeistararnir í Manchester City þá í eldlínunni.

Man City heimsækir Luton Town en City hefur ekki unnið í fjórum deildarleikjum í röð. Luton er sýnd veiði en ekki gefin á heimavelli en liðið hefur þar náð í stig af Liverpool og rétt tapað gegn Arsenal með marki á lokasekúndu leiksins.

Pep Guardiola, stjóri Man City, gerir fjórar breytingar á sínu liði. Erling Haaland er meiddur og spilar því ekki í dag en inn fyrir hann kemur Jack Grealish. John Stones og Manuel Akanji detta út fyrir Nathan Ake og Rodri og þá er Rico Lewis settur á bekkinn fyrir Matteo Kovacic.

Everton fær Chelsea í heimsókn en Everton væri fyrir ofan Chelsea á töflunni ef það hefðu ekki verið dregin tíu stig af liðinu á dögunum. Everton vann frábæran 3-0 sigur á Newcastle í miðri viku á meðan Chelsea tapaði gegn Manchester United. Þá er Lundúnarslagur þegar Fulham og West Ham mætast.

Mauricio Pochettino, stjóri Chelsea, gerir fjórar breytingar frá tapleiknum gegn Man Utd. Benoit Badiashile, Reece James, Conor Gallagher og Armando Broja byrjar allir.

Öll byrjunarliðin úr leikjunum þremur má sjá fyrir neðan.

Luton: Kaminski; Lockyer, Mengi, Bell; Doughty, Nakamba, Barkley, Giles; Townsend, Adebayo, Brown

Manchester City: Ederson; Walker, Dias, Ake, Gvardiol; Rodri, Bernardo, Kovacic; Foden, Alvarez, Grealish
(Varamenn: Ortega, Carson, Phillips, Stones, Gomez, Akanji, Nunes, Bobb, Lewis)
_______________________________________________

Everton: Pickford; Young, Tarkowski, Branthwaite, Mykolenko; Harrison, Garner, Gueye, McNeil; Doucoure; Calvert-Lewin.

Chelsea: Sanchez; James, Disasi, Badiashile, Cucurella; Caicedo, Fernandez; Palmer, Gallagher, Mudryk; Broja.
(Varamenn: Petrovic, Silva, Sterling, Jackson, Colwill, Maatsen, Gilchrist, Matos, Castledine.)
_______________________________________________

Fulham: Leno, Castagne, Adarabioyo, Bassey, Robinson, Palhinha, Cairney, Iwobi, Pereira, Willian, Jimenez.

West Ham: Fabianski, Coufal, Zouma, Aguerd, Cresswell, Soucek, Ward-Prowse, Fornals, Bowen, Kudus, Paqueta.

Sterling bekkjaður í dag.

Sterling bekkjaður í dag.

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal4+712
2Man City3+59
3Hull City4+38
4Chelsea4+17
5Brentford4+36
6Liverpool4+26
7Everton4+26
8Ipswich Town4-36
9Newcastle3+25
10Leeds3+15
11Nott. Forest405
12Brighton3+34
13Man Utd3+14
14Sunderland4-24
15Bournemouth4-13
16Crystal Palace4-53
17Tottenham4-52
18Fulham4-31
19Aston Villa4-61
20Coventry3-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.