Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 11. janúar 2019 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fótbolta.net mótið: Njarðvík skoraði þrjú í fyrri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Njarðvík 3 - 2 Afturelding
1-0 Atli Geir Gunnarsson ('3)
2-0 Andri Fannar Freysson ('15)
3-0 Stefán Ómar Magnússon ('37)
3-1 Kristján Atli Marteinsson ('48)
3-2 Andri Freyr Jónsson ('57)

Njarðvík lagði Aftureldingu að velli í opnunarleik Fótbolta.net mótsins í gærkvöldi. Liðin leika bæði í riðli 1 í B-deild.

Liðin mættust í Reykjaneshöllinni og fóru heimamenn feykilega vel af stað þar sem Atli Geir Gunnarsson og Andri Fannar Freysson skoruðu báðir á fyrsta stundarfjórðungi leiksins.

Stefán Ómar Magnússon gerði þriðja markið fyrir leikhlé en Mosfellingar komu grimmir út í síðari hálfleikinn og minnkaði Kristján Atli Marteinsson muninn skömmu eftir upphafsflautið.

Andri Freyr Jónsson bætti öðru marki við fyrir gestina þegar rúmur hálftími var eftir af venjulegum leiktíma en meira var ekki skorað og Njarðvíkingar komnir með þrjú stig í hús.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner