Fótbolti.net mótið: B-deild, Riðill 1
Víkingur Ó. 1 - 1 Vestri
0-1 Hákon Ingi Einarsson ('20)
1-1 Bjartur Bjarmi Bjarkason ('65)
Víkingur Ó. 1 - 1 Vestri
0-1 Hákon Ingi Einarsson ('20)
1-1 Bjartur Bjarmi Bjarkason ('65)
Í Akraneshöllinni mættust Víkingur Ó og Vestri í B-deild Fótbolta.net mótsins kvöld. Þetta var fyrsti leikur liðanna í riðlinum en Njarðvík er á toppi riðilsins með þrjú stig eftir að hafa lagt Aftureldingu af velli í gær.
Vestri leiddi í hálfleik þökk sé marki frá Hákoni Inga Einarssyni á 20. mínútu en á 65. mínutu jafnaði Bjartur Bjarmi Bjarkason leikinn fyrir Ólsara.
Næstu leikir liðanna eru í næstu viku en þá fara Ólafsvíkur Víkingar í Reykjaneshöllina og mæta þar toppliði Njarðvíkur á þriðjudag. Vestri mætir Aftureldingu á Varmárvelli laugardaginn 19. janúar.
Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir