Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 11. janúar 2019 09:20
Arnar Helgi Magnússon
Leiður Son: Ég vil kveðja með þremur stigum gegn United
Glaður Son.
Glaður Son.
Mynd: Getty Images
Heung-Min Son vonast eftir því að geta kvatt Tottenham með sigri á Manchester United áður en hann heldur til Dubai þar sem að hann mun taka þátt í Asíubikarnum.

Son gæti misst af fimm leikjum Tottenham en það veltur allt á því hvernig landsliðis hans mun ganga á mótinu, Suður Kóreu.

„Það er ekki auðvelt fyrir mig að yfirgefa liðið á þessum mikilvæga tímapunkti. Ég er mjög leiður yfir þessu en ég vil kveðja liðið í bili með sigri áður en ég held til Dubai," segir Son.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem að Son missir af nokkrum leikjum hjá Tottenham vegna landsliðsverkefna en hann missti af byrjun tímabilsins vegnu Asíuleikanna sem að Suður Kórea einmitt vann.

Sigurinn varð til þess að Son þarf ekki að sinna herskyldu í heimalandinu.

„Auðvitað er maður stoltur af því að spila fyrir landið sitt en ég er búinn að missa af einum mánuði af tímabilinu. Þetta er erfitt."
Athugasemdir
banner
banner
banner