Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 11. janúar 2021 08:20
Magnús Már Einarsson
Spilar Tottenham við Aston Villa eða Fulham á miðvikudag?
Spilar Tottenham við Fulham á miðvikudaginn?
Spilar Tottenham við Fulham á miðvikudaginn?
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildin er að skoða hvort hægt sé að fresta leik Aston Villa og Tottenham á miðvikudag og láta Tottenham og Fulham þess í stað mætast í frestuðum leik. The Athletic greinir frá þessu.

Tíu leikmenn Aston Villa greindust með kórónuveiruna i síðustu viku og líklegt er að leiknum gegn Tottenham verði frestað.

Í kringum síðustu mánaðarmót var leik Tottenham og Fulham frestað eftir smit hjá síðarnefnda liðinu. Enska úrvalsdeildinn vill nú spila þann leik á miðvikudag.

Fulham er ekki hrifið af hugmyndinni en liðið fór í framlengdan leik gegn QPR í enska bikarnum á miðvikudag og á síðan að mæta Chelsea á laugardaginn.

Ef Fulham mætir Tottenham á miðvikudag verður Chelsea leikurinn færður á laugardag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner