Fikayo Tomori, varnarmaður Chelsea, gæti verið lánaður til annars félags í þessum mánuði.
Tomori hefur ekki spilað mikið á þessu tímabili en hann kom inn á sem varamaður í sigrinum á Morecambe í enska bikarnum um helgina.
Tomori hefur ekki spilað mikið á þessu tímabili en hann kom inn á sem varamaður í sigrinum á Morecambe í enska bikarnum um helgina.
„Staðan hjá Fikayo er frekar opin í augnablikinu. Það er möguleiki á að hann fari á lán til að fá leiki annarsstaðar," sagði Frank Lampard, stjóri Chelsea.
„Það væri rétta lausnin bæði fyrir hann og félagið."
Athugasemdir