Íslenska undirbúningstímabilið er í fullum gangi og er einn leikur á dagskrá í kvöld.
Sá leikur er í Reykjavíkurmóti karla. Liðin tvö sem mætast áttu mjög ólík ár inn á fótboltavellinum í fyrra.
Víkingur átti fullkomið sumar þar sem þeir unnu tvöfalt; urðu Íslands- og bikarmeistarar. Á meðan féll Fylkir niður í næst efstu deild og leikur þar næsta sumar.
Það verður fróðlegt að sjá hvernig leikurinn fer í kvöld en það getur allt gerst á undirbúningstímabilinu. Leikið verður á Víkingsvellinum.
þriðjudagur 11. janúar
Reykjavíkurmót karla - A-riðill
19:00 Víkingur R.-Fylkir (Víkingsvöllur)
Athugasemdir