Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 11. febrúar 2019 13:30
Magnús Már Einarsson
Azpilicueta: Eitt versta kvöld ferilsins
Mynd: Getty Images
„Það er erfitt að finna orð til að lýsa tilfinningum mínum eftir leikinn," sagði Cesar Azpilicueta, varnarmaður Chelsea, eftir 6-0 tapið gegn Manchester City í gær.

Chelsea hefur átt erfitt uppdráttar að undanförnu en liðið tapaði einnig 4-0 gegn Bournemouth í lok síðasta mánaðar. Tapið var ennþá stærra í gær.

„Þetta var eitt af verstu kvöldum ferilsins. Þetta er mjög pirrandi og ég er mjög svekktur, Þegar þú tapar 6-0 þá þurfa allir að taka því að þeir spiluðu ekki vel. Við gerðum mistök sem má ekki gera í svona stórleik," sagði Azpilicueta.

„Þegar við unnum gegn þeim á Stamford Bridge þá var það því að við spiluðum allir mjög góðan leik. Í þetta skipti var það ekki uppi á teningnum.

„Það eina sem ég get gert er að biðja stuðningsmennina afsökunar því þetta er ekki ásættanlegt. Ég vorkenni þeim."

Athugasemdir
banner
banner