Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 11. febrúar 2019 12:01
Magnús Már Einarsson
Brentford vill fá Rúnar Alex
Rúnar Alex Rúnarsson.
Rúnar Alex Rúnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brentford, sem spilar í ensku Championship deildinni, vill fá Rúnar Alex Rúnarsson markvörð Dijon í sínar raðir en þetta kemur fram í hlaðvarpsþættinum Dr. Football í dag..

Kristján Óli Sigurðsson, annar af sérfræðingum þáttarins, segir að Brentford hafi reynt að kaupa Rúnar Alex í janúar en án árangurs. Brentford ætlar að reyna aftur við Rúnar Alex í sumar.

„Þeir ætla að gera allt sem þeir gera í sumar til að landa honum," sagði Kristján Óli í þættinum.

Rúnar Alex missti sæti sitt í byrjunarliði Dijon fyrir áramót en hann hefur hins vegar spilað leiki liðsins í franska bikarnum að undanförnu.

Rúnar Alex kom til Dijon frá Nordsjælland í Danmörku síðastliðið sumar. Markmannsþjálfari Brentford er hinn spænski Inaki Cana en hann var markmannsþjálfari Nordsjælland þegar Rúnar Alex var þar.

Tveir íslenskir leikmenn eru á mála hjá Brentford en það eru Kolbeinn Birgir Finnsson og markvörðurinn ungi Patrik Sigurður Gunnarsson. Þeir spila báðir með B liði Brentford.

Brentford siglir lygnan sjó í Championship deildinni í augnablikinu en liðið er í 18. sæti með 37 stig, ellefu stigum frá fallsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner