Sætið er farið að hitna hjá Maurizio Sarri, stjóra Chelsea, eftir erfiðar vikur að undanförnu. Chelsea tapaði 6-0 gegn Manchester City í gær og útlitið er ekki gott á Stamford Bridge þessa dagana.
Veðbankar á Englandi eru strax farnir að velta því fyrir sér hver gæti tekið við Chelsea ef Sarri verður rekinn.
Veðbankinn Betvictor er á því að Frank Lampard, stjóri Derby, sé langlíklegastur í stjórastól Chelsea ef Sarri missir starfið.
Lampard tók við Derby síðastliðið sumar en hann átti magnaðan feril með Chelsea á árunum 2001 til 2014.
Zinedine Zidane og Gianfranco Zola eru næstir á lista samkvæmt veðbönkum.

Stuðlar á næsta stjóra Chelsea
Frank Lampard 2/1
Zinedine Zidane 7/1
Gianfranco Zola 8/1
Diego Simeone 12/1
Jose Mourinho 12/1
Brendan Rodgers 12/1
Massimiliano Allegri 12/1
Nuno Espirito Santo 12/1
Didier Deschamps 16/1
Luis Enrique 16/1
Guus Hiddink 16/1
Athugasemdir