Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 11. febrúar 2019 21:28
Ívan Guðjón Baldursson
Marcelo: Bale ekki búinn að læra spænsku
Gareth Bale hefur skorað 100 mörk í 217 leikjum frá komu sinni í september 2013.
Gareth Bale hefur skorað 100 mörk í 217 leikjum frá komu sinni í september 2013.
Mynd: Getty Images
Marcelo segir að Gareth Bale sé ekki enn búinn að læra spænsku eftir fimm og hálft ár hjá Real Madrid.

Marcelo var í ítarlegu viðtali hjá Marca þar sem hann talaði meðal annars um félagaskipti Cristiano Ronaldo.

„Við Cristiano áttum í mjög góðu sambandi. Ég átti í góðu sambandi við fjölskyldu hans, við spiluðum saman í 9 ár og það er venjulegt að vera leiður. Ég setti boltann inn í teiginn og hann var alltaf mættur á réttan stað til að skjóta, þetta var auðvelt, við vorum með tengingu," sagði Marcelo.

„Svo er Bale á hinum kantinum en hann talar ekki, hann talar bara ensku. Við tölum saman með látbragði."

Marcelo var spurður hvort hann gæti hugsað sér að ganga til liðs við Ronaldo hjá Juventus.

„Juventus er stórkostlegt félag en ég er leikmaður Real Madrid."
Athugasemdir
banner
banner
banner