mán 11. febrúar 2019 22:06
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Alaves lifnaði við gegn Levante
Mynd: Getty Images
Alaves 2 - 0 Levante
1-0 Victor Laguardia ('23 )
2-0 Jony ('93 )

Alaves tókst loksins að vinna fótboltaleik en það var liðinn rúmur mánuður síðan liðið lagði Valencia að velli.

Victor Laguardia og Jony gerðu mörk heimamanna sem voru við stjórn allan tímann gegn Levante, en gestirnir hittu ekki einu skoti á markrammann.

Alaves byrjaði tímabilið af krafti og var í Meistaradeildarsæti en gengið snerist við í lok nóvember. Síðan 23. nóvember var liðið aðeins búið að vinna tvo leiki af ellefu og vonast stuðningsmenn til að nú sé loks komið að öðrum viðsnúningi.

Alaves er í sjötta sæti spænsku deildarinnar, tveimur stigum frá Sevilla sem er í Meistaradeildarsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner