Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
Hugarburðarbolti GW 34 Var Egypski kóngurinn að spila sinn síðasta leik?
Harkið - Maraþon upphitun fyrir 2. og 3. deild
Uppbótartíminn - Féllu á eigið sverð og umræðu svarað
Enski boltinn - Hvað er hægt að segja um Liam Rosenior?
Innkastið - Gulir en alls ekki glaðir
Útvarpsþátturinn - Öflugri en nokkru sinni fyrr
Niðurtalningin - Þriðja árið í röð?
Niðurtalningin - Síðasta skrefið í tröppunum
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin
Innkastið - Mega skammast sín og gera það
Rúnar Kristins: Stórfurðulegt að við töpuðum
Niðurtalningin - Langar að upplifa það aftur í Víkinni
Fótbolta nördinn: Undanúrslit - Draumaliðið vs 433
Hugarburðarbolti GW 33 Er eitt ríkasta félagslið í heimi að falla?
Niðurtalningin - Mun Stjarnan skína bjart í sumar?
Niðurtalningin - Þróttur horfir í Meistaradeildina
Enski boltinn - Guð blessi Norður-London
Útvarpsþátturinn - Kallaðir þú mig fokking tussu?
Niðurtalningin - Hver er pælingin hjá Val?
Niðurtalningin – Húsvíkingurinn í brúnni á Akureyri
   mán 11. febrúar 2019 15:30
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Úrvalslið áratugarins í Pepsi: Hættur ef titillinn kemur í sumar
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net velur draumalið Pepsi 2009-2019
Davíð Þór Viðarsson er í úrvalsliði Pepsi-deildarinnar 2009-2019.
Davíð Þór Viðarsson er í úrvalsliði Pepsi-deildarinnar 2009-2019.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net fagnar um þessar mundir tíu ára afmæli sínu. Þátturinn hefur verið í loftinu alla laugardaga milli klukkan 12 og 14 í tíu ár samfleytt.

Pepsi-deildin hefur verið í stóru hlutverki í þáttunum og í tilefni af afmælinu verður úrvalslið deildarinnar á árunum 2009 til 2019 opinberað í næstu þáttum.

Fyrsti leikmaðurinn var kynntur í þættinum á laugardaginn en það er Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH. Davíð varð Íslandsmeistari með FH 2009, 2015 og 2016.

Búinn að laga mataræðið
Davíð er orðinn 35 ára gamall og eftir tvö titlalaus ár með FH er markmið hans að bæta titli við áður en skórnir fara á hilluna frægu.

„Eins og síðustu tvö ár hafa verið hjá okkur þá er hugur í manni að enda þetta vel, enda þetta betur en síðustu tvö ár. Það er aðaldrifkrafturinn akkúrat núna," sagði Davíð í útvarpsþættinum á laugardaginn.

„Ég á eitt ár eftir af samningnum mínum og þetta fer eftir því hvernig það fer. Ef við vinnum þetta mót þá er ég hættur. Ef þið viljið losna við mig þá haldið þið með FH," sagði Davíð léttur í bragði en hann hefur sloppið vel frá meiðslum á síðari árum ferilsins.

„Ég hef verið mjög heppinn með meiðsli undanfarin ár. Ég hef ekki misst úr mikið af æfingum. Ég hef aðeins náð að taka mig í gegn hvað varðar mataræði og annað slíkt. Ég var aldrei nógu öflugur í því en það hefur verið að batna hjá mér síðustu ár. Það er gott að eiga góða að sem láta mann heyra það. Ég hef fengið að heyra það á góðlátlegan hátt hjá konunni og það átti rétt á sér."

„Ég er oftast ógeðslega leiðinlegur inni á vellinum"
Þrátt fyrir að hafa oft verið á meðal bestu leikmanna Pepsi-deildarinnar þá hefur Davíð aldrei verið valinn leikmaður tímabilsins.

„Ég hef ekki orðið þess heiðurs aðnjótandi ennþá. Þetta er ekki eitthvað sem ég hef pælt mikið í. Það eru tímabil þar sem ég spilaði það vel að mér fannst ég eiga það skilið eða eiga að koma til greina en ég hef ekki verið valinn. Aðalatriðið er að vinna titla og númer tvö er að maður sé sjálfur þokkalega sáttur með frammistöðuna," sagði Davíð en hann er með mikið keppnisskap og lætur í sér heyra innan vallar.

„Ég er oftast ógeðslega leiðinlegur inni á vellinum. Ég hef alltaf verið þannig og hef lítið lagt mig fram við að breyta því. Það getur hjálpað manni að rífa kjaft og koma sér í gang þegar maður þarf að mótívera sig," sagði Davíð sem bætti við að hann sjái eftir að hafa rifið kjaft við Sölva Snæ Guðbjargarson í leik FH og Stjörnunnar í Fótbolta.net í síðasta mánuði.

Hér að ofan má hlusta á spjallið við Davíð en þar talar hann meðal annars um sætasta titilinn og besta samherjann hjá FH.

Fylgist vel með útvarpsþætti Fótbolta.net næstkomandi laugardag þegar næsti leikmaður verður kynntur til sögunnar í liðið.
Slapp
banner
banner