Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 11. febrúar 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Mikill áhugi á Dries Mertens
Dries Mertens er einn heitasti sóknarmaður heims
Dries Mertens er einn heitasti sóknarmaður heims
Mynd: Getty Images
Belgískí sóknarmaðurinn Dries Mertens á aðeins fjóra mánuði eftir af samningi við Napoli en samningaviðræður hafa gengið afar illa milli hans og félagsins.

Mertens er 32 ára gamall og hefur verið í viðræðum við Napoli um nýjan tveggja ára samning en félagið telur launakröfur hans óraunhæfar.

Honum er frjálst að ræða við önnur félög og reyndu meðal annars Chelsea og Inter að kaupa hann í janúar en leikmaðurinn vildi ekki fara og félagið vildi ekki selja hann.

Mertens vildi vera áfram þar sem hann er aðeins þremur mörkum frá því að bæta markamet Marek Hamsik hjá félaginu.

Fjölmörg lið fylgjast með Mertens en þar má nefna Arsenal, Chelsea, Inter, Manchester United og Roma.
Athugasemdir
banner
banner