Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 11. febrúar 2020 14:57
Elvar Geir Magnússon
Telur að Lazio hafi ekki breiddina til að keppa um titilinn
Fabio Cannavaro, fyrrum leikmaður ítalska landsliðsins, telur að Lazio hafi ekki breiddina til að keppa við Inter og Juventus um ítalska meistaratitilinn til loka tímabils.

Spennan á Ítalíu er mikil þar sem Juventus og Inter eru með sama stigafjölda á toppnum og Lazio einu stigi eftir.

Lazio mætir Inter á fimmtudagskvöld.

„Lazio er með Ciro Immobile sem er magnaður í að klára færin svo er sköpunarmáttur Luis Alberto gulls ígildi. Þá er varnarlínan ákaflega traust," segir Cannavaro.

„En breiddin í hópnum hjá þeim er ekki sú sama og hjá keppinautunum. Það vantar gæði í varamennina og þess vegna held ég að þeir haldi þetta ekki út."

„Leikurinn á sunnudaginn mun hjálpa Lazio að sjá hversu langt liðið getur farið."

Spáir Börsungum sigri
Cannavaro lék meðal annars með Napoli á ferli sínum en félagið er nú komið í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar þar sem framundan er tveggja leikja einvígi við Barcelona.

„Katalónarnir eru líklegri. Lionel Messi gæti skorað fimm mörk í þessu einvígi eða átt þrjár stoðsendingar í leik eins og hann átti gegn Sevilla á sunnudag," segir Cannavaro.

„Ég tel meiri líkur á því að Atalanta komist áfram gegn Valencia."
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 38 27 6 5 89 35 +54 87
2 Napoli 38 23 7 8 58 36 +22 76
3 Roma 38 23 4 11 59 31 +28 73
4 Como 38 20 11 7 65 29 +36 71
5 Milan 38 20 10 8 53 35 +18 70
6 Juventus 38 19 12 7 61 34 +27 69
7 Atalanta 38 15 14 9 51 36 +15 59
8 Bologna 38 16 8 14 49 46 +3 56
9 Lazio 38 14 12 12 41 40 +1 54
10 Udinese 38 14 8 16 45 48 -3 50
11 Sassuolo 38 14 7 17 46 50 -4 49
12 Parma 38 11 12 15 28 46 -18 45
13 Torino 38 12 9 17 44 63 -19 45
14 Cagliari 38 11 10 17 40 53 -13 43
15 Fiorentina 38 9 15 14 41 50 -9 42
16 Genoa 38 10 11 17 41 51 -10 41
17 Lecce 38 10 8 20 28 50 -22 38
18 Cremonese 38 8 10 20 32 57 -25 34
19 Verona 38 3 12 23 25 61 -36 21
20 Pisa 38 2 12 24 26 71 -45 18
Slapp
banner