Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 11. febrúar 2020 19:20
Aksentije Milisic
Tottenham reyndi að fá Dzyuba í glugganum
Mynd: Getty Images
Framherji Zenit frá Pétursborg í Rússlandi, Artem Dzyuba, hefur sagt frá því að Tottenham spurðist út í sig í glugganum í síðasta mánuði. Þá reyndi Everton að kaupa leikmanninn á síðasta ári.

Dzyuba, sem hefur skorað 13 mörk og lagt upp 11 í 26 leikjum á þessu tímabili, segir að Tottenham vildi fá leikmanninn til að fylla upp í skarð Harry Kane sem er meiddur.

„Everton var klárt með tilboð í mig í fyrra. Ég gat ekki farið því við vorum að berjast um deildartitilinn. Ég hafði ekki unnið titilinn í Rússlandi og það var því mikilvægt fyrir mig að vera eftir. En í sumar var ekkert tilboð frá Englandi," sagði Dzyuba.

„Þegar Kane meiddist í vetur þá hafði Tottenham samband, Jose Mourinho hafði áhuga á mér. En það var nýársfrí, svo Zenit sagði nei.

Dzyuba hefur gert 24 mörk í 42 leikjum með landsliði Rússlands.
Athugasemdir
banner
banner