Tveir leikir fram fram í Lengjubikar karla á þessum miðvikudegi. Í A-deild karla tekur Afturelding á móti ÍA í Mosfellsbæ.
Fyrir leikinn er Afturelding, sem er í 1. deild, í fimmta sæti Riðils 1 með eitt stig úr fjórum leikjum. Skagamenn, sem leika í Pepsi Max-deildinni, eru með sex stig í þriðja sæti riðilsins. Hvorugt lið á möguleika að komast í undanúrslit.
Leikurinn hefst klukkan 20:00 og fer fram á Varmárvelli.
Í C-deild karla mætast þá Árborg og KFS á Selfossi klukkan 19:45. Bæði lið eru að leika sinn fyrsta leik í Lengjubikarnum í ár.
miðvikudagur 11. mars
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
20:00 Afturelding-ÍA (Varmárvöllur - gervigras)
Lengjubikar karla - C-deild, riðill 6
19:45 Árborg-KFS (JÁVERK-völlurinn)
Athugasemdir