Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 11. apríl 2019 18:38
Arnar Helgi Magnússon
Chamberlain spilaði í sextíu mínútur
Mynd: Getty Images
Það fer heldur betur að styttast í endurkomu enska miðjumannsins Alex Oxlade-Chamberlain en hann spilaði klukkutíma í æfingaleik á þriðjudag.

Æfingaleikurinn fór fram fyrir luktum dyrum á Melwood, æfingasvæði Liverpool. Leikurinn var gegn Bury.

Chamberlain spilaði eins og áður segir, klukkutíma, áður en að honum var skipt útaf. Hann hefur ekki spilað svona lengi síðan að hann varð fyrir meiðslunum slæmu gegn Róma í Meistaradeildinni á síðasta ári.

Í mars spilaði Chamberlain með U23 ára liði Liverpool en honum var skipt útaf eftir fjörtíu mínútur vegna meiðsla.

Liverpool mætir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag en leikurinn fer fram á Anfield.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner