Í kvöld hefjast 8-liða úrslitin í Evrópudeildinni. Barist er um sæti í úrslitaleiknum sem fram fer í Baku í Aserbaídsjan þetta árið.
Arsenal mætir Napoli á heimavelli í dag. Þetta verður erfitt fyrir Arsenal, en liðið getur huggað sig við það að það hefur gengið illa hjá Napoli að undanförnu.
Sjá einnig:
Ancelotti: Megum ekki spila svona gegn Arsenal
Það er boðið upp á spænskan slag Villarreal og Valencia í beinni útsendingu og þá mætast Benfica og Eintracht Frankfurt. Í Tékklandi spilar Chelsea við Slavia Prag sem kom á óvart með því að slá Sevilla út í 16-liða úrslitunum.
Leikirnir hefjast allir klukkan 19:00.
Leikir dagsins:
19:00 Arsenal - Napoli (Stöð 2 Sport)
19:00 Villarreal - Valencia (Stöð 2 Sport 3)
19:00 Benfica - Eintracht Frankfurt
19:00 Slavia Prag - Chelsea
Athugasemdir