Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 11. apríl 2019 19:18
Arnar Helgi Magnússon
„Pogba ekki með leikmenn sem láta hann líta vel út"
Mynd: Getty Images
Frammistaða Paul Pogba hefur aðeins farið niður á við eftir nokkra frábæra leiki í röð eftir að Ole Gunnar Solskjær tók við liðinu.

Mark Bosnich, fyrrum markvörður Manchester United, segir að það sé ekki hægt að skella skuldinni einungis á Pogba.

„Með fullri virðingu fyrir leikmönnum Manchester United þá er hann ekki með leikmenn eins og Rakitic, Suarez eða Messi með sér í liði, því miður," segir Bosnich.

„Það gera allir ráð fyrir því að Pogba taki yfir leikina og sýni listir sínar í 90 mínútur. Hann hefur ekki þessa leikmenn í Manchester United sem að geta látið hann líta vel út."

„Auðvitað er oft hægt að ætlast til meira af jafn góðum leikmanni og honum en hann fær litla sem enga hjálp."

Manchester United mætir West Ham í ensku úrvalsdeildinni á laugardag.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner