sun 11. apríl 2021 08:00
Magnús Már Einarsson
Lampard hefur fengið tilboð
Mynd: Getty Images
Frank Lampard, fyrrum stjóri Chelsea, segist hafa fengið tilboð frá öðrum félögum síðan hann var rekinn úr starfi í janúar.

„Það hafa komið tilboð undanfarnar sex vikur, tvo mánuði, sem hafa verið spennandi en ekki það rétta samt," sagði Lampard.

Lampard eignaðist sitt fjórða barn á dögunum og hann nýtur þess nú að taka frí frá fótbolta eftir að hafa verið stjóri Derby og Chelsea undanfarið tvö og hálf ár. Hann segist stefna á endurkomu í fótboltann síðar.

„Þetta er klárlega tími fyrir mig til að stíga til hliðar eftir að hafa stýrt liðum í tvö og hálft ár samfleytt og núna er ég að sinna fjölskyldunni," sagði Lampard.

„Tækifærin sem komu voru ekki alveg þau réttu en ég hugsaði um þau. Þetta er eitthvað sem ég hef áhuga á að gera á réttum tíma og á réttum stað."
Athugasemdir
banner
banner