Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 11. apríl 2021 18:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho: Mín skoðun sú að við áttum ekki skilið að tapa
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.
Mynd: Getty Images
„Mín skoðun er sú að við áttum alls ekki skilið að tapa þessum leik," sagði Jose Mourinho, stjóri Tottenham, eftir tap gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni.

United var 1-0 undir í hálfleik en kom til baka og vann leikinn með þremur mörkum gegn einu.

„Við spiluðum gegn góðu liði með marga sterka leikmenn inn á miðjunni. Við fengum góð tækifæri til að skora annað mark. Við áttum tilraun sem fór í tréverkið og við vorum með yfirburði á köflum."

„Þeir skoruðu en viðbrögð okkar við því verðskulduðu annað mark. Svo skoruðu þeir annað mark sitt en við brugðumst vel við því og áttum að skora þá líka."

„Við töpuðum en ég hrósa leikmönnum mínum. Við töpuðum gegn mjög góðu liði. Ég hrósa leikmönnum mínum og ég hrósa andstæðingnum."

Tottenham virðist ekki líða vel með forystu en Mourinho sagðist ekki vilja tala við fjölmiðla um þá stöðu. Tottenham er sex stigum frá fjórða sætinu.

„Þú veist að það er erfitt en ekki tölfræðilega ómögulegt."
Athugasemdir
banner
banner