Halmstad 1 - 0 BK Häcken
1-0 Mikael Boman ('84)
1-0 Mikael Boman ('84)
Hinn 19 ára gamli Valgeir Lunddal Friðriksson byrjaði í vinstri bakvarðarstöðunni hjá BK Häcken sem heimsótti Halmstad í fyrstu umferð nýs tímabils í efstu deild sænska boltans.
Leikurinn gegn Halmstad var mjög jafn en eina mark leiksins kom á 84. mínútu. Mikael Boman skoraði það eftir stoðsendingu frá Thomas Boakye.
Valgeiri var skipt af velli á 89. mínútu og inn í hans stað kom Óskar Tor Sverrisson en lokatölur urðu 1-0.
Häcken átti frábært tímabil í fyrra og endaði í þriðja sæti.
Athugasemdir