Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 11. maí 2020 12:30
Elvar Geir Magnússon
AC Milan og Leicester hafa áhuga á norskum varnarmanni
Kristoffer Ajer.
Kristoffer Ajer.
Mynd: Getty Images
Ítalskir fjölmiðlar segja að AC Milan sé í viðræðum um að fá Kristoffer Ajer, norskan varnarmann sem er hjá Celtic í Skotlandi.

Enska úrvalsdeildarfélagið Leicester ku einnig hafa áhuga á þessum 22 ára leikmanni sem var hjá Start en gekk í raðir Celtic 2016.

Tore Pedersen, umboðsmaður Ajer, segir að samningurinn við Celtic verði ekki framlengdur.

Ivan Gazidis, framkvæmdastjóri AC Milan, hefur rætt við umboðsmanninn.

Brendan Rodgers, stjóri Leicester, þekkir Ajer vel enda lék norski landsliðsmaðurinn undir hans stjórn hjá Celtic.
Athugasemdir
banner
banner