Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 11. maí 2020 22:30
Aksentije Milisic
Mourinho hótaði að selja Matic í háfleik
Mynd: Getty Images
Jordan Houghton, leikmaður MK Dons, hefur sagt frá því þegar Jose Mourinho, fyrrverandi stjóri Chelsea, hótaði að selja Matic í hálfleik.

Houghton er uppalinn hjá Chelsea en hann fékk fá tækifæri hjá aðalliðinu og flakkaði hann um á láni hjá nokkrum liðum áður en hann var seldur til MK Dons.

Houghton spilaði nokkra leiki með Chelsea á undirbúningstímabili og segir hann frá því að þegar Mourinho hótaði að selja Matic í hálfleik, hafi hann áttað sig á því hversu harður heimurinn getur verið.

„Ég spilaði með liðinu í leik gegn Wimbledon á einu undirbúningstímabili," segir Houghton.

„Mourinho var brjálaður út í Matic í hálfleik og tók kast á hann. Hann hótaði að selja hann. Það var þá sem ég átta mig á því hversu harður heimur þetta er."

Mourinho er mikill aðdáandi Matic og talar ávallt vel um leikmanninn. Hann fékk hann til Manchester United árið 2017.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner