Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 11. maí 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Tonali opinn fyrir því að fara til Inter
Sandro Tonali
Sandro Tonali
Mynd: Getty Images
Sandro Tonali, leikmaður Brescia á Ítalíu, er opinn fyrir því að fara til Inter í sumar en þetta kemur fram í Corriere dello Sport.

Inter hefur undanfarnar vikur verið í viðræðum við Brescia um kaup á Tonali.

Þessi 20 ára gamli miðjumaður þykir einn mest spennandi leikmaður ítölsku deildarinnar en mörg stórlið eru á höttunum eftir honum.

Samkvæmt Corriere dello Sport er Tonali opinn fyrir því að fara til Inter. Félagið myndi þá fá Tonali á láni í eitt tímabil og kaupa hann ári síðar, svipað og félagið gerði með Nicolo Barella.

Massimo Cellino, eigandi Brescia, vildi fá töluvert hærri upphæð fyrir Tonali áður en kórónaveiran fór að breiðast um Evrópu en gæti nú þurft að sætta sig við lægra verð.
Athugasemdir
banner
banner