Fotbolti.net
11.05.22 - 23:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Óli Jó: Eins svekkjandi og fótboltaleikur getur orðið

Óli Jó: Eins svekkjandi og fótboltaleikur getur orðið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta er eins svekkjandi eins og fótboltaleikur getur orðið og það verður erfið rútuferð hjá okkur heim," sagði Ólafur Jóhannesson þjálfari FH eftir 1-0 tap gegn KA á Dalvík í kvöld.

Honum fannst lítið varið í þennan fótboltaleik í kvöld. Honum fannst sínir menn fara vel eftir áætlun.

„Það gekk svo sem ágætlega. Mér fannst þessi leikur aldrei ná neinu flugi og vera hægur og rólegur, ekki mikið um að vera hjá hvoru liðinu en svo fer þetta bara svona, svona er þetta."

Lasse Petry gekk til liðs við FH á dögunum og lék sinn fyrsta leik í kvöld.

„Hann er fyrst og fremst góður í fótbolta, góður á boltanum, með góðar sendingar. Það vantar aðeins uppá leikæfinguna, þess vegna gott fyrir hann að fá 90 mínútur í dag og hann verður bara betri," sagði Óli.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.