Heimasíða Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA tók saman skemmtilegan lista í dag en á honum má finna fimm fyrirliða á mótinu sem verð í sviðsljósinu.
Íslendingar eiga sinn fulltrúa á þessum lista og er það að sjálfsögðu Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði.
Hér að neðan má sjá þá fimm fyrirliða sem verða í sviðsljósinu á HM.
Íslendingar eiga sinn fulltrúa á þessum lista og er það að sjálfsögðu Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði.
Hér að neðan má sjá þá fimm fyrirliða sem verða í sviðsljósinu á HM.
Essam El Hadary (Egyptaland) - Margir munu fylgjast með Egyptalandi á mótinu þar sem einn besti leikmaður heims í dag, Mohamad Salah leikur þar. Augu heimsins munu hins vegar líka snúa að markverði Egyptalands, Essam El Hadary. Metið yfir elsta leikmann í sögu HM á Kólumbíski markvörðurinn Faryd Mondragon en hann var 43 ára og þriggja daga gamall þegar hann spilaði á HM í Brasilíu 2014. Hadary mun hins vegar slá þetta met nokkuð örugglega. Fyrirliði Egyptalands verður hvorki meira né minna en 45 ára og 150 daga gamall þegar HM hefst!
Harry Kane (England) - Mikil pressa verður á Englendingum á HM líkt og á öðrum stórmótum. Harry Kane er tekinn við sem fyrirliði Englands og mikið mun mæða á honum. Kane hefur skorað yfir 100 mörk samtals á síðustu fjórum tímabilum og Englendingar treysta á að hann muni skila inn nokkrum mörkum í Rússlandi. Spurningin er hvernig hann mun höndla pressuna en Kane verður yngsti fyrirliðinn á mótinu
Neymar (Brasilía) - Brasilía ætlar að sækja til sigurs í Rússlandi og tryggja sér um leið sjötta heimsmeistaratitil þjóðarinnar. Fyrirliði Brasilíu er einhver stærsta stjarna fótboltans í dag, Neymar. Hann meiddist illa í vetur en er kominn aftur og skoraði gegn Króatíu í vináttuleik. Neymar meiddist í 8-liða úrslitum á síðasta HM og Brasilía lét flengja sig út úr mótinu í undanúrslitum í eftirminnilegum 7-1 sigri Þýskalands. Nú ætlar Neymar hins vegar að vera með allt mótið og lyfta sjálfum titlinum.
Aron Einar Gunnarsson (Ísland) - Gengi Íslands undanfarin ár hefur verið einhver ótrúlegasta saga alþjóðafótboltans. Líkt og allir vita verður Íslands lang minnsta þátttökuþjóð á HM í sögunni, og fyrsta þjóðin með undir milljón íbúa. Leiðtoginn er Aron Einar Gunnarsson og er það hans verk að fylla liðsfélaga sína af sama eldmóði og í Frakklandi fyrir tveimur árum.
Rademal Falcao (Kólumbía) - Falcao missti af síðasta heimsmeistaramóti í Brasilíu þegar Kólumbíumenn slógu í gegn. Liðið komst alla leið í 8-liða úrslit en duttu úr leik gegn heimamönnum í Brasilíu. Falcao hafði slitið liðbönd í hné en mótið í Brasilíu átti að vera hans fyrsta HM. Falcao er markahæsti leikmaður í sögu Kólumbíu og verður ætlast til mikils af honum ef Kólumbía ætlar að ná betri árangri en síðast.
Athugasemdir