Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 11. júní 2021 19:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Boltinn keyrður inn á í opnunarleik EM
Andrea Bocelli hefur áður átt stórleik inn á fótboltavellinum
Andrea Bocelli hefur áður átt stórleik inn á fótboltavellinum
Mynd: Getty Images
Nú stendur yfir opnunarleikur EM milli Tyrklands og Ítalíu.

Staðan er markalaus þegar um 25 mínútur eru liðnar af leiknum.

Það var miklu tjaldað til í upphitun fyrir þennan leik og m.a. tók ítalski tenorinn Andrea Bocelli lagið og framkallaði eflaust mikla gæsahúð hjá mörgum.

Svo var komið að leiknum sjálfum, það vakti skemmtilega athygli að fjarstýrður bíll keyrði með boltann að miðjunni í upphafi leiks.

Það má sjá bílinn keyra með boltann í myndbandinu hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner