Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 11. júní 2021 17:58
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarliðin í opnunarleik EM - Demiral og Söyuncu byrja
Ciro Immobile
Ciro Immobile
Mynd: Getty Images
Byrjunarliðin eru klár í opnunarleik Evrópumeistaramótsins milli Sviss og Ítalíu. Leikurinn hefst kl 19:00.

Það voru vangaveltur um hvort Ozan Kabak eða Merih Demiral myndu byrja við hlið Caglar Söyuncu í vörn Tyrkja og nú er ljóst að það er Demiral sem er í byrjunarliðinu.

Cengiz Under sem spilaði með Leicester á láni frá Roma á síðustu leiktíð er á bekknum.

Hjá Ítalíu er 36 ára gamall fyrirliði Ítala Giorgio Chiellini er við hlið Bonucci í vörninni. Markahrókurinn Ciro Immobile er í fremstuvíglínu og Jorginho leikmaður Chelsea er límið á miðjunni.

Leikurinn er í opinni dagskrá á Stöð 2 sport 2 og hefst kl 19:00 eins og áður sagði.

Byrjunarlið Ítalíu: Donnarumma, Florenzi, Bonucci, Chiellini, Spinazzola, Locatelli, Jorginho, Barella, Beradi, Insigne, Immobile

Byrjunarlið Tyrklands: Cakir, Celik, Demiral, Soyuncu, Tufan, Yokuslu, Meras, Yazici, Calhanoglu, Yilmaz, Karaman
Athugasemdir
banner
banner