Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 11. júní 2021 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Grealish minnir Mourinho á Figo
Mynd: EPA
Portúgalski stjórinn Jose Mourinho, verðandi stjóri Roma, hefur líkt Jack Grealish, landsliðsmann Englands, við Luis Figo, goðsögn í Portúgal.

Grealish er einn besti leikmaður Aston Villa og verður með enska landsliðinu á EM. Grealish er mikill skemmtikraftur inn á vellinum og sýnir reglulega skemmtilega takta.

Luis Figo lék með Sporting, Inter, Barcelona og Real Madrid á sínum félagsliða ferli og lék tæplega 130 landsleiki fyrir Portúgal. Hann er einn besti leikmaður Portúgal allra tíma og var mikill töffari á velli líkt og Grealish er í dag.

„Grealish er gríðarlega góður, það sem hann býr til, persónuleikinn hans; látið mig fá boltann. Hann minnir mig á Luis Figo," sagði Mourinho á talkSPORT.
Athugasemdir
banner
banner
banner