Liverpool hefur verið í viðræðum um kaup á Florian Neuhaus samkvæmt heimildum blaðamanna í Þýskalandi.
Neuhaus er miðjumaður Gladbach og skoraði hann sex mörk og lagði upp sex í Bundesliga á tímabilinu.
Á dögunum neitaði Neuhaus fréttaflutningi þýskra miðla um að hann væri búinn að ná samkomulagi við Bayern um að ganga í raðir félagsins eftir ár.

SportBild er á því að það séu talsverðar líkur á því að Neuhaus endi á Anfield í sumar og Sport1 segir að Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, vilji fá Neuhaus til Liverpool í stað Gini Wijnaldum sem fór til PSG.
Gladbach vill fá meira en 40 milljónir evra fyrir Neuhaus sem er þessa stundina með þýska landsliðinu í undirbúningi fyrir EM sem er að hefjast.
Líkur eru á því að framtíð Neuhaus skýrist eftir EM í sumar. Neuhaus er 24 ára gamall miðjumaður sem á að baki sex A-landsleiki.
Update #Neuhaus (2/2): Among all the teams from the @premierleague, @LFC is currently the club that has deposited its interest most concretely. Neuhaus told us @SPORT1 (last week): „I can very well imagine a move abroad.“ His future will become clear after the Euros. #LFC 🔴
— Florian Plettenberg (@Plettigoal) June 11, 2021
Athugasemdir