Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 11. júní 2021 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pereira líklega á förum frá Manchester United
Mynd: Getty Images
Andreas Pereira er sagður vilja fara frá Manchester United, hann sér ekki fram á mikinn tíma á vellinum þar sem samkeppni á miðjunni er hörð.

Pereira var á láni hjá Lazio í vetur og gæti verið lánaður aftur en Lazio er ólíklegt til þess að kaupa Pereira í sumar. Lazio þyrfti að reiða fram 27 milljónir evra til að nýta sér forkaupsréttinn á miðjumanninum en er ekki sagt tilbúið að greiða þá upphæð.

Brasilíumaðurinn skoraði eitt mark og lagði upp fjögur í 33 leikjum í öllum keppnum með Lazio.

Spænsk og ítölsk félög eru sögð hafa áhuga á Pereira sem á tvö ár eftir af samningi sínum við United.

Bruno Fernandes, Scott McTominay, Paul Pogba, Donny van de Beek og jafnvel Juan Mata og Jesse Lingard eru sagðir vera framar í goggunarröðinni ef Pereira kýs að vera áfram á Old Trafford.

Athugasemdir
banner
banner