Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 11. júní 2021 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Vantar 11 milljónir punda upp á tilboð Man Utd í Sancho
Jadon Sancho
Jadon Sancho
Mynd: Getty Images
Sky Sports greinir frá því í dag að Manchester United sé ellefu milljónum punda frá því að ná saman við Borussia Dortmund um kaup á Jadon Sancho.

United bauð því sem nemur 75 milljónum punda en Dortmund er sagt vilja fá um 86 milljónir punda. Tölurnar eru heildartölur, með öllum ákvæðum og árangurstengdum greiðslum.

Viðræður milli félaganna munu halda áfram. Dortmnd vill fá stóran hluta af þessum 86 milljónum greiddan um leið og skiptin í gegn en United er sagt vilja dreifa greiðslunum.

Báðir aðilar vilja að skiptin gangi í gegn og er talað um að Sancho hafi þegar náð samkomulagi við United um laun og annað slíkt. Samningur Sancho við Dortmund rennur út sumarið 2023.
Athugasemdir
banner
banner
banner