Frá undirritun samningsins. Á myndinni eru Delia Smith aðaleigandi Norwich og forsvarsmenn félagsins.
Atli Barkarson skrifaði í vikunni undir nýjan tveggja ára samning við enska félagið Norwich.
Atli er nú kominn á atvinnumannasamning hjá félaginu eftir að hafa áður verið á unglingasamningi.
Hinn 17 ára gamli Atli er frá Húsavík en hann skoraði tvö mörk í sjö leikjum í 2. deildinni með Völsungi í fyrra áður en hann fór til Norwich.
Hjá Norwich hefur Atli spilað sem vinstri bakvörður, kantmaður og miðjumaður í unglingaliðunum en hann verður líklega í bakverðinum á komandi tímabili.
Atli hefur bæði spila með U17 og U18 ára landsliði Íslands á ferlinum.
Athugasemdir