Liverpool er í viðræðum við Stoke um kaup á kantmanninum Xherdan Shaqiri en Sky Sports greinir frá þessu.
Shaqiri hefur verið orðaður við Liverpool í slúðurblöðum að undanförnu og nú segir Sky að viðræður séu í gangi.
Shaqiri ku vera falur fyrir 13 milljónir punda eftir fall Stoke úr ensku úrvalsdeildinni.
Svissneski landsliðsmaðurinn kom til Stoke árið 2015 eftir að hafa áður leikið með Inter og Bayern Munchen.
Á síðasta tímabili skoraði Shaqiri átta mörk í 38 leikjum þegar Stoke féll.
Athugasemdir