Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 11. júlí 2018 12:28
Elvar Geir Magnússon
Sala á vestum á Englandi fer upp úr öllu valdi - Allir vilja vera eins og Southgate
Southgate stíllinn slær í gegn!
Southgate stíllinn slær í gegn!
Mynd: Getty Images
Landsliðsþjálfarinn Gareth Southgate er vinsælasti maður Englands í dag en hann hefur náð frábærum árangri með enska liðið á HM í Rússlandi.

Hann hefur í gegnum keppnina haldið sig við sama fatastílinn, verið í ljósblárri skyrtu, dökku vesti og með bindi.

Þessi fatastíll er nú sá vinsælasti á Englandi og vestin rjúka úr búðarhillunum, einnig í Moskvu þar sem undanúrslitaleikurinn gegn Króatíu fer fram í kvöld.

Mirror segir frá líkamsræktarstöðvar á Englandi láti þjálfarana klæðast samskonar fötum og Southgate í tilefni dagsins!

Fólk er byrjað að hita upp á Rauða torginu í Moskvu en torgið líkist frekar Trafalgar torgi í Lundúnum þennan daginn! Það er löngu uppselt á leikinn en það eru þó ekki allir viðstaddir með miða. Í dag hefur verið hægt að sjá fólk með skilti að auglýsa eftir miðum á leikinn.

Hér að neðan má sjá frá stemningunni í Rússlandi en leikur Englands og Króatíu hefst 18 að íslenskum tíma. Sigurliðið mun mæta Frakklandi í úrslitaleiknum á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner