Manchester United og Chelsea eigast við í lokaleik 1. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar á Old Trafford í dag en leikurinn hefst klukkan 16:30.
Harry Maguire, dýrasti varnarmaður heims, er í byrjunarliði Manchester United í fyrsta leik og sömu sögu má segja af Aaron Wan-Bissaka sem kom frá Crystal Palace.
Anthony Martial er upp á topp og Paul Pogba er þá einnig í byrjunarliðinu.
Kurt Zouma, Mason Mount og Tammy Abraham byrja allir hjá Chelsea en þetta er fyrsti leikur Chelsea undir stjórn Frank Lampard í deildinni.
Byrjunarlið Manchester United: De Gea, Wan-Bissaka, Lindelof, Maguire, Shaw, Pereira, McTominay, Pogba, Lingard, Rashford, Martial.
Byrjunarlið Chelsea: Kepa, Azpilicueta, Christensen, Zouma, Emerson, Jorginho, Kovačić, Mount, Barkley, Pedro, Abraham.
Athugasemdir