Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 11. ágúst 2019 17:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hvíta-Rússland: Willum hjálpaði BATE að landa góðum sigri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Willum Þór Willumsson kom inn á sem varamaður þegar BATE vann góðan sigur á heimavelli í dag.

BATE tók á móti Energetik-BGU og það var frábær byrjun á leiknum sem skóp sigurinn fyrir BATE.

BATE skoraði fjögur mörk á fyrsta hálftímanum, leikur búinn og þrjú stig í hús. Energetik-BGU minnkaði muninn undir lok fyrri hálfleiks, en þeir komust ekki lengra en það.

Willum kom inn á þegar rúmar 20 mínútur voru eftir og hjálpaði hann BATE að landa sigrinum.

BATE er í öðru sæti deildarinnar, tveimur stigum frá toppliðinu. BATE á leik til góða á toppliðið, Brest.
Athugasemdir
banner
banner
banner