Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 11. ágúst 2019 18:56
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía: Fyrsta mark Sveins í keppnisleik með Spezia
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði eitt af fimm mörkum Spezia þegar liðið komst áfram í ítalska bikarnum í kvöld.

Spezia úr Seríu B tók á móti Pro Patria úr Seríu C. Sveinn Aron var í byrjunarliði Spezia og hann skoraði annað mark liðsins á 24. mínútu leiksins. Hans fyrsta mark í keppnisleik með Spezia.

Staðan var 2-0 í hálfleik, en í seinni hálfleiknum bætti Spezia við þremur mörkum.

Spezia fer því áfram í bikarnum. Fróðlegt verður að sjá hvert hlutverk Sveins verður í vetur, en á seinni hluta síðasta tímabils var hann í láni hjá Ravenna í C-deildinni. Sveinn er 21 árs gamall.


Athugasemdir
banner