Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   sun 11. ágúst 2019 19:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jói Kalli: Það verður að vera á mína ábyrgð
Jóhannes Karl Guðjónsson.
Jóhannes Karl Guðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er virkilega svekkjandi að hafa gefið þetta frá okkur snemma leiks og það verður að vera á mína ábyrgð," sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, eftir 2-1 tap gegn Breiðabliki í Pepsi Max-deildinni í dag.

Lestu um leikinn: ÍA 1 -  2 Breiðablik

„Við fórum í fjögurra manna varnarlínu. Ég legg leikinn upp rangt og við fáum það í andlitið snemma leiks. Því miður töpuðum við leiknum þá."

„Í fyrri hálfleiknum voru Blikarnir með leikinn. Mér fannst við vera alltof opnir og Blikarnir hefðu getað refsað okkur meira. Við þurftum að breyta til, til að loka á sóknir þeirra. Í seinni hálfleik náum við ágætis tökum á leiknum og við fengum færi til að jafna leikinn. Á móti svona góðu liði var það of mikið að gefa þeim þetta forskot svona snemma."

ÍA hefur ekki gengið vel að undanförnu. Er komið eitthvað stress í hópinn?

„Nei, alls ekki. Deildin spilast þannig að hún er virkilega jöfn. Við erum ekki sáttir með stigasöfnunina upp á síðkastið, en það er ekki eitthvað sem við getum breytt núna. Við settum okkur markmið að vera í efri hlutanum á deildinni," sagði Jói Kalli, en ÍA er í sjötta sæti með 22 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner