Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 11. ágúst 2019 18:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Maguire: Viljum gera þennan völl að vígi
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Harry Maguire lék sinn fyrsta leik fyrir Manchester United í dag. Hann var virkilega öflugur í 4-0 sigri United á Chelsea á Old Trafford.

Maguire var keyptur frá Leicester fyrir 80 milljónir punda á dögunum, hann er dýrasti varnarmaður sögunnar.

„Þetta er frábær byrjun fyrir mig og liðið. Við vorum smá heppnir í fyrri hálfleik, en í seinni hálfleik vorum við meira eins og við sjálfir," sagði Maguire eftir leikinn.

„Þetta var fyrsti leikurinn á Old Trafford og auðvitað tók þetta eitthvað á taugarnar. Við misstum boltann stundum á hættulegum svæðum, en við hreyfðum hann vel í seinni hálfleik og fremstu þrír voru hættulegir í skyndisóknum."

„Á síðasta tímabili héldum við hreinu tvisvar á þessum velli. Við verðum að gera þennan völl að vígi."

Að lokum sagði Maguire: „Mér leið vel. Ég hef bara átt þrjá eða fjóra daga með strákunum. Ég mun verða betri."
Athugasemdir
banner
banner
banner