Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 11. ágúst 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Milan reynir að losa sig við Andre Silva
Andre Silva er líklega á förum frá Milan
Andre Silva er líklega á förum frá Milan
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið AC Milan reynir að losa sig við portúgalska framherjann Andre Silva.

Silva er 23 ára gamall en hann kom frá Porto árið 2017 en tókst ekki að finna sig á Ítalíu. Honum gekk vel í Evrópudeildinni en þegar það kom að deildarleikjum þá var lítið að frétta.

Hann var lánaður til Sevilla á síðustu leiktíð þar sem hann gerði 11 mörk í 40 leikjum og nú leitar Milan að félagi handa honum.

Hann var nálægt því að fara til Mónakó en eftir að hafa staðist læknisskoðun þá komst hann ekki að samkomulagi við félagið og hafnaði því boðinu.

Napoli var boðið að fá hann á láni með möguleika á að kaupa hann en Carlo Ancelotti, þjálfari Napoli, hafnaði því að fá hann þar sem leikstíll hans passar ekki inn í liðið.

Wolves hafði mikinn áhuga á að landa honum en glugginn á Englandi er nú lokaður og því óvíst hvað verður um kappann.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner