Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 11. ágúst 2019 11:16
Brynjar Ingi Erluson
Tveir menn handteknir fyrir utan heimili Özil - Réðust á öryggisverði
Óttast er um öryggi Mesut Özil og Sead Kolasinac
Óttast er um öryggi Mesut Özil og Sead Kolasinac
Mynd: Getty Images
Mesut Özil og Sead Kolasinac, leikmann Arsenal, eru ekki í hóp liðsins sem mætir Newcastle United klukkan 15:00 en óttast er um öryggi þeirra.

Kolasinac og Özil lentu í hræðilegri lífsreynslu í lok júlí er tveir menn vopnaðir hnífum reyndu að ræna þá. Leikmennirnir voru ásamt eiginkonum sínum er atvikið átti sér stað en bosníski leikmaðurinn barðist á móti og flúðu árásarmennirnir vettvang.

Leikmennirnir hafa ekki getað tekið þátt í undirbúningi liðsins fyrir tímabilið og verða þá ekki með gegn Newcastle í dag en tveir menn voru handteknir fyrir utan heimili Özil á fimmtudag.

Þeir veittust þá að öryggisvörðum áður en kallað var til lögreglu en mennirnir voru handteknir á staðnum.

Þeir hafa nú þegar verið kærðir og munu þeir fara fyrir rétt í næsta mánuði en lögregla telur að atvikið tengist ekki árásarmönnunum frá því í síðasta mánuði.
Athugasemdir
banner
banner
banner