Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 11. ágúst 2019 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Vonar að Neymar velji Barcelona framyfir Real Madrid
Neymar er eftirsóttur
Neymar er eftirsóttur
Mynd: Getty Images
Carlos Alena, leikmaður Barcelona á Spáni, vonast til að Neymar velji liðið fram yfir Real Madrid.

Leonardo, yfirmaður knattspyrnumála hjá PSG, staðfesti í gær að Neymar mun líklega yfirgefa félagið í þessum glugga en Real Madrid hefur verið í viðræðum við félagið.

Barcelona hefur einnig mikinn áhuga á að fá Neymar en Alena vonast til þess að hann snúi aftur á Nou Camp.

„Það yrði afar sárt að sjá Neymar fara til erkifjendanna, sérstaklega eftir að hafa spilað með Barcelona. Við vonum að hann komi aftur hingað. Hann er magnaður leikmaður og einn sá besti í heimi," sagði Alena.
Athugasemdir
banner
banner