Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 11. ágúst 2019 14:30
Brynjar Ingi Erluson
Ziyech framlengir samning sinn við Ajax
Hakim Ziyech er ekki á förum frá Ajax
Hakim Ziyech er ekki á förum frá Ajax
Mynd: Getty Images
Hakim Ziyech, lykilmaður Ajax í Hollandi, framlengdi í dag samning sinn við félagið til ársins 2022.

Ziyech er 26 ára gamall og átti stórkostlegt tímabil með Ajax á síðustu leiktíð er liðið vann hollensku deildina og komst í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu.

Hann var orðaður við mörg af stærstu félögum Evrópu en ákvað að vera áfram hjá félaginu.

Ziyech hefur fengið tækifæri síðustu tvö ár að yfirgefa Ajax en í dag ákvað hann að framlengja samning sinn til ársins 2022.

Hann fer tímabilið vel af stað en hann skoraði eitt af mörkum Ajax í 5-0 sigrinum á Emmen í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner