Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 11. október 2018 09:34
Arnar Helgi Magnússon
Alderweireld nýbakaður faðir: Lífið gæti ekki verið betra
Mynd: Getty Images
Toby Alderweireld leikmaður Tottenham og belgíska landsliðsins var mikið í umræðunni í sumar en á tímabili leit allt út fyrir það að hann myndi ganga til liðs við Manchester United.

Alderweireld eignaðist dóttur nú á dögunum sem virðist hafa gefið honum ansi mikið.

„Ég gæti ekki verið ánægðari með lífið núna. Þetta er bara 10 af 10 mögulegum."

„Þegar þú eignast fullkomna dóttur þá skiptir allt annað engu máli. Ánægjan sem þetta gefur mér, ég reyni að yfirfæra hana í knattspyrnuna."

Eins og fyrr segir var Alderweireld mikið í sviðsljósinu í sumar varðandi möguleg vistaskipti sín til United. Hann segir þó að hann sé ekki farinn að ræða nýjan samning við Tottenham.

„Nei ég get ekki sagt það. Ég er fókuseraður á að hjálpa Tottenham í augnablikinu. Það er það eina sem ég get gert."

Alderweireld er nú staddur með belgíska landsliðinu í verkefni en Belgía og Sviss mætast í kvöld í Þjóðadeildinni.
Athugasemdir
banner
banner