Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   fim 11. október 2018 22:00
Arnar Helgi Magnússon
Mark Martial gegn Newcastle ansi dýrt fyrir United
Mynd: Getty Images
Manchester United vann fínan endurkomu sigur gegn Newcastle um síðustu helgi. Newcastle komst yfir snemma í leiknum og var búið að tvöfalda forystu sína þegar tæpar tíu mínútur voru liðnar af leiknum.

Það var allt annað Manchester United lið sem mætti út í síðari hálfleik en það náði að snúa leiknum sér í hag með mörkum frá Mata, Martial og Sanchez.

Mark Martial þýðir það að hann hefur nú skorað 25 mörk síðan að hann kom til Manchester United árið 2015.

Í kaupsamning Mónakó við United var klásúla sem hljóðaði uppá það að þegar Martial yrði kominn í 25 mörk þyrfti United að borga 8,7 milljónir punda.

Þetta er þó ekki eina klásúlan sem gæti hækkað kaupverðið en United fær 8,7 milljónir punda þegar og ef Martial nær 25 landsleikjum fyrir Frakkland. Vinni Martial gullknöttinn bætast aðrar 8,7 milljónir punda við.

Martial kom til félagsins á 36 milljónir punda en eftir að Martial komst í 25 mörk er kaupverðið komið í tæpar 45 milljónir punda og gæti enn hækkað.

Martial er einn þeirra ellefu leikmanna sem verða samningslausir eftir tímabilið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner